Ný síða hjá ibvfan.is

17.okt.2007  13:54

Sverrir Júlíusson kom í heimsókn til ÍBV og kynnti nýja síðu Stuðningsmannfélags ÍBV, félagið heitir nú ÍBV hákarlarnir til heiðurs Hermanni Hreiðarssyni stórvarnarjaxli. "Síðan verður tileinkuð handboltanum í vetur og knattspyrnunni á sumrin. Inn á þessari síðu erum við með ýmislegt í gangi innan klúbbsins, s.s. netkosningar og skipulagningu ferða á leiki ÍBV úti á landi. Allt það nýjasta verður inn á síðunni. Hægt verður að skrá sig í klúbbinn, kostar ekkert. Ýmislegt fylgir inngöngu í klúbbinn, og hvetjum við áhugasama til að hafa samband á ibvfan.is. Frettabréf verður gefið út mánaðarlega með ýmsum upplýsingum og fróðleikum starf klúbbsins," sagði Sverrir í viðtali við ibv.is.