ÍBV - Íþróttafélag boðar til framboðsfundar

24.maí.2006  18:14

-verður í Týsheimilinu kl. 20.00 í kvöld, miðvikudag

ÍBV-Íþróttafélag boðar til almenns félagsfundar með frambjóðendum allra lista til bæjarstjórnar, á miðvikudagskvöld kl. 20:00 í Týsheimilinu. Félagar fjölmennum og ræðum málin með þeim sem koma til með að stjórna bænum næstu fjögur árin.

Þeir sem áhuga hafa á knattspyrnuhúsi, Þjóðhátíð, Shell- og Pæjumóti og yngra flokka starfi, svo dæmi séu nefnd, nú er tækifærið til að koma hugðarefnum á framfæri. F.h. ÍBV-Íþróttafélags, Jóhann Pétursson formaður.