ÍBV og VSV framlengja samstarfinu

03.apr.2024  15:02

Í dag undirrituðu ÍBV-íþróttafélag og VSV samning um áframhaldandi samstarf. Samningur þessi gildir út árið 2026. VSV hefur í áraraðir stut tmyndarlega við bakið á ÍBV og á því verður engin breyting. Það er ÍBV ómetanlegt að eiga jafn sterkan bakhjarl eins og Vinnslustöðina sem er einn af máttarstólpum atvinnulífsins í Vestmannaeyjum. Vinnslustöðin leggur ríka áherlsu á að hér í Vestmannaeyjum sé blómlegt íþróttastarf og vill sitt af mörkum leggja til þess að það sé hægt.

Andrea Atladóttir fjármálastjóri VSV og Ellert Scheving Pálsson framkvæmdastjóri ÍBV skrifuðu undir samninginn í Gullbergi, nýjum líkamsræktarsal félagsins. Það var mikið líf í salnum á meðan, þar voru 54 á krakkar úr gunnskóla akademíu ÍBV á æfingu.