ÍBV-íþróttafélag og Ísfélag hf. framlengja samstarfinu

12.feb.2024  12:48

ÍBV-íþróttafélag og Ísfélag hf. undirrituðu, síðasta föstudag, samning um áframhaldandi samstarf. Samningur þessi gildir út árið 2026.

Um áraraðir hefur Ísfélagið stutt ötullega við bakið á ÍBV og á næstu árum verður engin breyting þar á.  Það er gríðarlega mikilvægt fyrir ÍBV-íþróttafélag að einn af máttarstólpum atvinnulífs Vestmannaeyja styrki félagið af slíkum myndarskap. Ísfélagið leggur mikla áherslu á að blómlegt íþróttastarf í Vestmannaeyjum og þar með það umfangsmikla starf sem ÍBV-íþróttafélag viðhefur í handknattleik og knattspyrnu.

ÍBV-íþróttafélag og Ísfélag hf. vilja lýsa yfir ánægju sinni með áframhaldandi samstarf.

ÁFRAM ÍBV