Fjórar frá ÍBV á æfingar U-15 hjá HSÍ

03.jan.2017  09:00

Ólafur Víðir Ólafsson og Rakel Dögg Bragadóttir landsliðsþjálfarar U-15 ára landsliðs Íslands í handbolta hafa valið 27 manna æfingahóp sem kemur saman dagana 6-8.janúar.  Þau völdu þær Andreu Gunnlaugsdóttur, Míu Rán Guðmundsdóttur, Lindu Brynjarsdóttur og Hörpu Valey Gylfadóttur frá ÍBV í hópinn.
Allir þessir leikmenn hafa leikið afar vel í vetur og eru því vel að þessu vali komnar.

ÍBV óskar þessum efnilegu stúlkum innilega til hamingju með þennan árangur.