Dagur og Elliði Snær frá ÍBV í æfingahópi U-21 í handbolta

31.okt.2016  09:42

Þeir Dagur Arnarsson og Elliði Snær Viðarsson voru valdir í æfingahóp hjá U-21 í handbolta. Æfingarnar hófust nú í dag 31. október og eru út vikuna, Þessar æfingar eru undirbúningur fyrir HM í Serbíu sem fram fer í janúar. Þess má til gamans geta að það eru 4 Eyjapeyjar í hópnum, auk Dags og Elliða eru þeir Nökkvin Dan Elliðason (Gróttu) og Hákon Daði Styrmisson (Haukum). Þjálfarar U-21 árs liðsins eru þeir Sigursteinn Arndal og Ólafur Stefánsson.

Við óskum strákunum til hamingju með áfangann.