Eyþór Orri á æfingar hjá HSÍ

25.okt.2016  08:22

Maksim Akbashev, þjálfari U-15 ára landsliðs karla hefur valið tvo hópa til æfinga helgina 4. - 6. nóvember.
Hóparnir eru aldursskiptir, drengir fæddir 2002 og 2003.  Maksim valdi samtals 56 drengi til æfingana og þar af einn frá ÍBV sem er Eyþór Orri Ómarsson.

Eyþór sem er á yngra ári hópsins er vel að valinu komin enda mikið efni þar á ferð.

ÍBV óskar Eyþóri Orra innilega til hamingju með þennan árangur sinn.