Eric Dhaira kom færandi hendi til Úganda

19.okt.2016  13:23

Eric Dhaira bróðir Abels heitins Dhaira, var í Eyjum í sumar og lék í marki 2. flokks ÍBV og einnig með KFS. Hann hélt á ný til síns heima fyrir skömmu og var með ÍBV búninga og takkaskó í farteskinu sem hann færði áhugasömum, á myndinni má sjá nokkra glaðbeitta Úgandamenn í ÍBV treyjum, hver veit nema spretti þarna upp hæfileikaríkir knattspyrnumenn sem láta ljós sitt skína með ÍBV eða öðrum liðum.