Félagið bætir bílakost sinn

14.sep.2016  09:29

Í sumar hefur félagið fjárfest í tveimur nýjum Ford Transit bílum. Þessir bílar eru annars vegar 17 manna og hins vegar 16. Gömlu bílar félagsins voru frá árinu 2006 og hafa þeir þjónað félaginu vel undanfarin 10 ár en þeir bílar voru gefnir til félagsins af Vinnslustöðinni og Ísfélaginu.

Ætlumst við til að leikmenn og starfsfólk félagsins gangi vel um þessa nýju bíla okkar og sýni eignum félagsins virðingu.