Díana Helga á æfingar i U-19 hjá KSÍ

13.jún.2016  09:49

Þórður Þórðarson landsliðsþjálfari U-19 ára landsliðs Íslands í knattspyrnu valdi Díönu Helgu Guðjónsdóttu í  æfingahóp sem kemur saman helgina 17-19.júní og æfir í Laugardalnum í Reykjavík.  Díana hefur leikið vel fyrir 2.flokk og nýtt þau tækifæri sem hún hefur fengið í meistaraflokki mjög vel enda Díana mjög efnilegur leikmaður.

ÍBV óskar Díönu Helgu innilega til hamingju með þennan árangur