Þrír frá ÍBV í U-16

06.jún.2016  08:24

Heimir Ríkharðsson þjálfari U-16 ára landsliðs Islands í handbolta hefur valið 24 leikmenn til æfinga.  Heimir valdi þrjá leikmenn frá ÍBV en það eru þeir Páll Eiríksson, Óliver Daðason og Ívar Logi Styrmisson.  Æfingarnar fara fram í Reykjavík.

ÍBV óskar þessum efnilegu peyjum innilega til hamingju með þennan árangur