Abel Dhaira

27.mar.2016  15:08

Abel Dhaira leikmaður ÍBV lést í dag, aðeins 28 ára að aldri, eftir stutta en harða baráttu við krabbamein.

Um leið og ÍBV vottar fjölskyldu Abels og vinum sína dýpstu samúð vill félagið þakka öllum þeim fjölmörgu sem sýnt hafa Abel og fjölskyldu hans stuðning sinn.

Fjölskylda Abels vill ennfremur koma á framfæri þökkum til allra þeirra sem stutt hafa Abel og fjölskylduna í þessari erfiðu baráttu.