Yngri flokkar - Níu stúlkur á æfingar með yngri landsliðum HSÍ

19.feb.2024  11:30

Kristín Klara, Lilja Kristín, Agnes Lilja, Birna Dögg, Klara, Alexandra Ósk, Amelía Dís, Sara Dröfn, Þóra Björg

Yngri landslið kvenna hjá HSÍ æfa dagana 29. febrúar - 3. mars nk. og voru gefnir út æfingahópar um helgina fyrir U15, U16, U18 og U20, og á ÍBV 9 iðkendur sem taka þátt í þessum æfingum.

 

Hildur Þorgeirsdóttir og Sigríður Unnur Jónsdóttir völdu Kristínu Klöru Óskarsdóttur og Lilju Kristínu Svansdóttur til æfinga með U15.

 

Díana Guðjónsdóttir og Jón Brynjar Björnsson völdu Agnesi Lilju Styrmisdóttur, Birnu Dögg Egilsdóttur og Klöru Káradóttur til æfinga með U16.

 

Rakel Dögg Bragadóttir og Sigurjón Friðbjörn Björnsson völdu Alexöndru Ósk Viktorsdóttur sem nú leikur með Ikast í Danmörku.

 

Ágúst Þór Jóhannsson og Árni Stefán Guðjónsson völdu Amelíu Dís Einarsdóttur, Söru Dröfn Richardsdóttur og Þóru Björgu Stefánsdóttur til æfinga með U20.

 

ÍBV óskar þeim til hamingju með valið!