Handbolti - Sandra í A landsliðshóp

29.maí.2017  09:07

Sandra Erlingsdóttir hefur verið valin í 22 manna A-landsliðshóp sem mun æfa og keppa hér heima og í Danmörku í sumar. Landsliðið sem er undir stjórn Axels Stefánssonar er að hefja undirbúning fyrir undankeppni Evrópumótsins 2018 sem hefst í haust.

Þetta eru frábærar fréttir og óskum við okkar efnilegu Söndru innilega til hamingju með verðskuldað val.

 

Áfram ÍBV