Fótbolti - Pablo Punyed til liðs við knattspyrnulið ÍBV

04.nóv.2015  14:32

Knattspyrnuráð ÍBV hefur gengið frá samningi til 2ja ára við Pablo Punyed sem leikmaður mfl. karla ÍBV í knattspyrnu.

Pablo kemur til ÍBV frá Stjörnunni þar sem hann hefur leikið sl. tvö keppnistímabil.  Þar áður lék Pablo með Fylki árið 2013 og Fjölni árið 2012.  Hann á að baki 50 leiki í Pepsí-deild karla og 22 leiki í 1.deild karla með Fjölni. Hann hefur skorað 5 mörk í Pepsí-deild karla og 4 mörk í 1.deild karla.

Pablo er landsliðsmaður El Salvador og vann sér þar sæti eftir mjög góða frammistöðu með liði Stjörnunnar.  Hjá Stjörnunni var hann lykilmaður í því liði sem hampaði fyrsta meistaratitli félagsins.

Pablo er mjög hæfileikaríkur leikmaður og hefur sýnt það með frammistöðu sinni á vellinum.  Hann verður Eyjaliðinu mikill liðsstyrkur og einn af lykilmönnum liðsins.  ÍBV sér hann líka fyrir sér í þeirri Eyjastemmingu sem lið ÍBV á að byggja á næstu árin, og í því verkefni að koma ÍBV í fremstu röð.  Nú mun Pablo verða hluti af þeim hópi leikmanna, þjálfara og knattspyrnuráðsmanna sem munu sameiginlega í góðu samstarfi efla ÍBV og búa til öflugt lið.

Knattspyrnuráð ÍBV býður Pablo velkominn til liðs við ÍBV og væntir mikils af honum í framtíðinni.

ÁFRAM ÍBV, alltaf og alls staðar.