Fótbolti - ÍBV semur við Norðmann

04.mar.2015  20:36

Knattspyrnuráð ÍBV hefur gengið frá tveggja ára samningi við norska leikmanninn Tom Even Skogsrud. Hann er 21 árs og á leiki með yngri landsliðum NoregsHann kom til reynslu hjá ÍBV í lok janúar og lék þá tvo leiki með liðinu. Félagið og leikmaðurinn voru bæði ánægð með það sem aðilar höfðu fram að færa og hafa gengið frá samningi í kjölfarið.

 
Tom fór ungur að árum eða 16 ára til Manchester City og var á mála þar til 18 ára aldurs er hann gekk til liðs við Glasgow Rangers.  Þaðan fór hann til heimalandsins og hefur leikið þar með Sandefjord og Kongsvinger. Hann lék árin 2012-2013 með Sandefjord og á sl. keppnistímabili með Kongsvinger.
 
Tom er fjölhæfur leikmaður sem getur leyst stöðu miðvarðar, bakvarðar og á miðjunni. Hann mun hefja strax æfingar með liðinu og leika sinn fyrsta leik með ÍBV sem allra fyrst.
 
Tom verður mikilvægur hlekkur í því þriggja ára verkefni sem miðar að því að byggja upp öflugt lið ÍBV, sem hefur það markmið að ná betri árangri en undanfarin ár.  Markmið félagsins og Jóhannesar Harðarsonar þjálfara liðsins, er að byggja upp lið sem leikur skemmtilega knattspyrnu, byggir á þeirri Eyjastemmingu sem lið ÍBV á að byggja á, og síðast en ekki síst að efla yngri leikmenn liðsins.
 
Við vonumst einnig til að stuðningsmenn ÍBV, nær og fjær, taki vel á móti Tom og hann muni upplifa sanna Eyjastemmingu á leikjum ÍBV.
 
Knattspyrnuráð ÍBV býður Tom velkominn á Eyjuna fögru og væntir mikils af honum.
 
ÁFRAM ÍBV, alltaf og alls staðar.