Fótbolti - Óskar Elías framlengir við ÍBV

02.ágú.2014  16:12
Fyrir helgi framlengdi Óskar Elías Zoega samningi sínum við knattspyrnudeild ÍBV um eitt ár.
Óskar sem er uppalinn eyjamaður og kemur upp úr unglingastarfi ÍBV hefur komið sterkur inn í meistaraflokk félagsins og til að mynda spilað sex leiki í Pepsí deildinni í sumar.
 
Á sama tíma og skrifað var undir framlengingu samningsins var gerður lánssamningur við BÍ/Bolungarvík og mun Óskar spila með þeim út tímabilið.