Fótbolti - Víðir Þorvarðarson gengur til liðs við ÍBV

29.des.2011  03:22
Eyjapeyjinn Víðir Þorvarðarson gekk í dag til liðs við ÍBV frá Stjörnunni. Víðir sem er 19 ára var valinn besti leikmaður 2. flokks Stjörnunnar og skoraði m.a. 15 mörk með liðinu.
 
Víðir lék 11 leiki í Pepsídeildinni síðasta sumar og á klárlega framtíðina fyrir sér. 
 
Hann gerir 2 ára samning við félagið og mun án efa styrkja hópinn fyrir átökin næsta sumar. 
 
ÍBV býður Víði hjartanlega velkominn heim.