Yngri flokkar - Skeljungur og ÍBV semja til 3ja ára í viðbót vegna Shellmótssins

22.jún.2007  17:00

Í gærmorgun undirrituðu Stefán Karl Segatta og Einar Friðþjófsson nýjan samstarfssamning á milli Skeljungs og ÍBV um áframhaldandi samstarf vegna Shellmótsins. Það ríkir mikil ánægja hjá okkur í ÍBV að hafa náð áframhaldandi samstarfi við Skeljung um Shellmótið enda samstarfið verið einstaklega gott þessi ár sem að það hefur staðið yfir og okkur hlakkar til að halda þessu samstarfi varðandi þetta elsta og merkasta knattspyrnumót barna á Íslandi.

Á myndinni sjást þeir Stefán Karl og EInar takast í hendur eftir undirritun samningsins