Fótbolti - Þóra Björg og Helena á æfingar með U-16 KSÍ

15.jan.2020  14:02

Jörundur Áki Sveinsson landsliðsþjálfari U-16 ára landsliðs Íslands valdi í dag tvo leikmenn ÍBV til æfinga með liðinu en æfingarnar fara fram á höfuðborgarsvæðinu í lok janúar.  Jörundur Áki valdi þær Þóru Björgu Stefánsdóttur og Helenu Jónsdóttur frá ÍBV.
Utan hefðbundinna æfinga fá leikmenn fræðslu um fyrirbyggingu meiðsla ásamt því að mælingar verða gerðar á hópnum.

ÍBV óskar þeim Þóru Björgu og Helenu innilega til hamingju með þennan árangur