Þrír frá ÍBV í Piltalandslið HSÍ

23.des.2016  09:41

Þeir Elliði Snær Viðarsson, Ágúst Emil Grétarsson og Daníel Örn Griffin voru allir valdir í lokahóp Piltalandsliðs Íslands í handbolta sem tekur þátt í æfingamóti sem fram fer í Þýskalandi dagana 26-31.desember.  Allir hafa þessir peyjar fengið að spreyta sig með meistaraflokki ÍBV í vetur og staðið sig með miklum sóma og því vel að þessu vali komnir.

ÍBV óskar þessum efnilegu peyjum innilega til hamingju með þennan árangur