Fótbolti - Mikið um að vera á og í kringum Hásteinsvöll

07.maí.2014  17:06

fyrsti leikur sumarsins í fótboltanum 8. maí gegn Stjörnunni

Í dag hafa ýmsir komið að verki við að gera Hásteinsvöll kláran fyrir morgundaginn þegar liðið tekur á móti Stjörnunni. Klukkan hefur verið færð svo sjá megi á hana úr stúkunni, stígurinn milli íþróttahúss og Hásteinsvallar var lagaður af bænum, verið er að klára stúkuna steypa og stutt í að hún verði klædd auk þess var ýmislegt fleira gert til að hafa allt klárt. viljum við þakka öllum sem hönd hafa lagt á plóginn.