Fótbolti - Kvennalið ÍBV fær liðsstyrk.

14.feb.2014  08:30

Í dag gekk kvennalið ÍBV frá samningi við Hollensku landsliðskonuna Kim Dolstra sem leikur með Hollenska liðinu Aod Haag.  Kim sem nú hefur fest sig í sessi í landsliðshópi Hollands er miðvörður og kemur til ÍBV strax í næstu viku.  Kim var árið 2009 kosin leikmaður ársins í Hollandi.

Eyjakonur eru því komnar með fullskipaðan leikmannahóp fyrir komandi tímabil og eru leikmenn í óða önn að tínast til eyja áður en Lengjubikarinn hefst í lok febrúar.