Fótbolti - Gunnar Þorsteinsson framlengir við ÍBV

14.feb.2014  22:30
Á hádegi í dag skrifaði Gunnar Þorsteinsson undir framlengingu á samningi sínum við ÍBV og gildir samningurinn til loka ársins 2015.
Gunnar, sem er fæddur 1994, gekk til liðs við ÍBV fyrir síðastliðið tímabil og þrátt fyrir ungan aldur lék hann alls 23 leiki bæði í deild og bikar.
 
Ánægja er innan félagsins með að tryggja þjónustu þessa unga og efnilega leikmanns og væntir félagið mikils af leikmanninum í framtíðinni.