Fótbolti - Þrír frá ÍBV í u-19 landsliðið

28.jan.2013  17:02
 Þrír leikmenn ÍBV hafa verið valdir í úrtaksæfingar u-19 ára landsliðiðs í fótbolta. Þetta eru þeir Jón Ingason, Kristinn Skæringur Sigurjónsson og Sigurður Grétar Benónýsson.
Að þessu sinni er undir 19 ára landsliðið tvískipt, fæddir 1995 og fæddir 1996. Kristinn Skæringur og Sigurður Grétar eru í hópnum sem fæddir eru 1996 en Jón Ingason er í 1995 hópnum.
 
ÍBV óskar þeim innilega til hamingju með þennann árangur.