Fótbolti - Þrjár frá ÍBV á æfingar hjá A-landsliðinu.

22.jan.2013  08:40
Þær Kristín Erna Sigurlásdóttir, Elísa Viðarsdóttir og Bryndís Lára Hrafnkelsdóttir voru allar valdar til æfinga um næstu helgi með A-landsliði Íslands í knattspyrnu.  Æfingarnar fara fram í Reykjavík og eru liður í undirbúningi liðsins fyrir lokakeppni EM í Svíþjóð.
Þjálfari liðsins er Sigurður Ragnar Eyjólfsson.
 
ÍBV óskar stúlkunum innilega til hamingju með þennan árangur.