Fótbolti - ÍBV - Fram

15.júl.2012  10:58
Í dag tekur ÍBV á móti Fram á Hásteinsvellinum. Leikurinn hefst klukkan 16:00. ÍBV datt bæði út úr Borgunarbikarnum og Evrópukeppninni í síðustu viku en hafa samt sem áður unnið fjóra síðustu leiki sína í deildinni.
ÍBV getur komist upp í 4. sætið með sigri og aðeins tveimur stigum frá 2. sætinu. Það er því til mikils að koma og hvetja ÍBV áfram í dag.