Fótbolti - ÍBV - Stjarnan

28.maí.2012  18:56
 Eyjamenn taka á móti Stjörnunni á Hásteinsvellinum Þriðjudaginn 29. maí klukkan 18:00. Mikil spenna er fyrir leiknum og vonast Eyjamenn nú eftir fyrsta sigrinum á þessu tímabili.
 Víðir Þorvarðarson er því að mæta sínum gömlu félögum en hann kom frá Stjörnunni fyrir tímabilið. Gert er ráð fyrir að lykilmenn liðsins sem hafa verið meiddir fari nú að skila sér í hópinn en á morgun má búast við Tryggva Guðmunds, Andra Ólafs og Gunnari Má. Nú þýðir ekki að sitja heima hjá sér og röfla um gengi liðsins, allir á völlinn og styðjum okkar lið til sigurs! Vonumst til að sjá sem flesta á vellinum.