Fótbolti - Fantasy leikur fyrir Pepsi-deild karla

04.maí.2012  13:32
   Draumaliðsleikur Pepsi-deildarinnar er farinn af stað með látum. Um að gera að skrá sig!

Alls hafa um 2.800 manns skráð sig í leikinn og má búast við mun fleirum nú þegar styttist í að Pepsi-deildin hefjist á nýjan leik. Í nýskráningu er hægt að velja ÍBV og ferðu sjálfkrafa í ÍBV-deildina. Sigurvegari deildarinnar fær veglegann vinning og væri frábært að fá eins marga stuðningsmenn í deildina.

Fantasydeildin eins og leikurinn kallast er leikur fyrir Pepsi-deild karla í anda Fantasy Premier League sem nýtur mikilla vinsælda meðal knattspyrnuáhugamanna hérlendis og víðar. Í leiknum fyrir ensku knattspyrnuna eru yfir 12 þúsund lið skráð frá Íslandi.

Leikurinn fer þannig fram að þú velur 15 manna lið fyrir 100 milljónir úr Pepsi-deild karla. Svo fá leikmenn ákeðinn fjölda stiga eftir því hvernig þeir standa sig og þar fram eftir götunum en nánari upplýsingar má nálgast á síðum fantasydeildarinnar hér að neðan.