ÍBV ætlar að standa fyrir hópferð á bikarúrslitaleik ÍBV og Vals

Handbolti - HÓPFERÐ! EKKI HÆGT AÐ SLEPPA ÞESSU.

23.feb.2012  10:41

ÍBV er búið að setja upp pakka á bikarúrslitaleikinn. Leikurinn fer fram næstkomandi laugardag (25.feb). Dagskráin er svohljóðandi:

8:00 Brottför frá Eyjum til Þorlákshafnar

11:00 Rútuferð í Laugardalshöll

13:30 Bikarúrslitaleikur

15:30 Farið á SPOT þar sem verða góð tilboð á mat og drykk.

17:30 Rútferð í Þorlákshöfn

19:15 Brottför frá Þorlákshöfn.

Inni í pakkanum eru allar ferðir (herjólfur og rútuferðir) og miði á leikinn.

 

ALLT ÞETTA FYRIR AÐEINS 3.000 KRÓNUR. Frítt fyrir börn undir 13 ára!

 

Skráning fer fram í Týsheimilinu. Sími þar er 481-2060