Fótbolti - Elísa Viðarsdóttir valin í A-landslið Íslands.

20.feb.2012  14:47
KSÍ hélt nú í hádeginu blaðamannafund þar sem tilkynnt var um val á landsliðshópnum sem fer til Algarve og tekur þátt í árlegu og mjög sterku æfingamóti.  Sigurður Ragnar Eyjólfsson valdi 21 leikmann til að taka þátt í verkefninu.  Elísa var búin að standa sig mjög vel báðar æfingahelgarnar á undan og uppskar eftir því.  Þetta er gríðarlegur heiður fyrir Elísu sem hefur stefnt að þessu undanfarið ár.  Landsliðið spilar 4.leiki í ferðinni, þann fyrsta 29.febrúar gegn Þjóðverjum í kjölfarið verður leikið gegn Svíum þann 5.mars og gegn Kínverjum þann 7.mars.  Í lok ferðar er svo leikið um sæti.
 
ÍBV óskar Elísu innilega til hamingju með þennan glæsilega árangur.