Fótbolti - Nýir, gamlir leikmenn æfa með ÍBV

28.nóv.2011  16:10
 Meistaraflokkur kom saman í Eyjum um helgina og æfði, en líkt og þekkt er æfir hópurinn bæði í Reykjavík og Vestmannaeyjum yfir vetrartíman. Magnús Gylfason stjórnaði æfingum í Eimskipshöllinni í Vestmannaeyjum.
 
Vel var tekið á því og er gaman að sjá að nokkrir gamlir leikmenn eru byrjaðir að æfa á ný og hafa til að mynda Bjarnir Rúnar Einarsson, Pétur Runólfsson, Elías Fannar og Gauti Þorvaldsson allir æft undanfarnar vikur með liðinu. 
 
Sjá meira
 
Allir hafa þessir leikmenn leikið áður með ÍBV Elías Fannar og Gauti síðast 2010 en Pétur og Bjarni síðast 2009. Gaman verður að sjá hvort að þeir muni spila með ÍBV næsta sumar.