Fótbolti - Yfirlýsing frá ÍBV og Finni Ólafssyni vegna félagsskipta leikmannsins í Fylki

23.nóv.2011  13:11

ÍBV og Finnur Ólafsson vilja koma því á framfæri við stuðningsmenn ÍBV að báðir aðilar skilja sáttir og ákvörðunin er tekin í samráði.

 

 Leikmaðurinn fór þess á leit við félagið að vegna fjölskylduaðstæðna fengi leikmaðurinn leyfi til að tala við lið á Höfuðborgarsvæðinu um nýjan samning. Félagið leitaði allra leiða til að halda í leikmanninn og fá hann til að framlengja samning sinn við félagið um eitt ár en aðstæður buðu ekki upp á það.

 

Það skal tekið fram að leikmaðurinn skilur í fullri sátt við félagið og vill koma fram þökkum til stuðningsmanna, leikmanna og stjórnar fyrir gríðarlega skemmtilegan tíma í Eyjum.

 

Félagið þakkar Finni fyrir sitt framlag til félagsins á fótboltavellinum síðastliðin tvö ár og óskar honum velfarnaðar í þeim verkefnum sem hann tekur sér fyrir hendur.