Fótbolti - Orkan áfram stærsti styrktaraðili knattspyrnudeildar karla

10.nóv.2011  09:11

Orkan hefur síðastliðin tvö ár verið stærsti styrktaraðili deildarinnar og hefur samstarfið gengið vel.

Stuðningsmenn ÍBV hafa notið góðs af samstarfinu með góðum afslætti af bensínlítranum með því að tryggja sér Orkulykil ÍBV. Núverandi samkomulag er til þriggja ára er það von félagsins að samstarfið verði áfram farsælt og gott.