Fótbolti - Ragnar Leósson semur við ÍBV

29.okt.2011  11:29
ÍBV hefur samið við Ragnar Leósson. Þessi bráðefnilegi piltur á að baki 16 landsleiki fyrir yngri landslið Íslands og hefur leikið 60 leiki með ÍA og skorað í þeim 10 mörk. 
Sjá meira.

Ragnar er sóknarþenkjandi leikmaður sem verður spennandi að fylgjast með í hvíta búningnum. Ragnar semur við ÍBV til þriggja ára.

Við bjóðum Ragnar hjartanlega velkominn til ÍBV og vonum að kraftar hans muni nýtast félaginu vel og að hann muni ná að blómstra í herbúðum ÍBV.