Fótbolti - Fjórar stúlkur frá ÍBV valdar í landslið

25.okt.2011  09:51
ÍBV á fjóra fulltrúa í yngri landsliðum kvenna sem verið var að velja. Bergrún Linda Björgvinsdóttir var valin í U-17 og þær Sóley Guðmundsdóttir, Sigríður Lára Garðarsdóttir og Svava Tara Ólafsdóttir voru valdar í U-19 ára landsliðshópinn. ÍBV óskar þessum efnilegu stúlkum til hamingju með árangurinn.