Fótbolti - Eyþór Helgi kemur heim

22.okt.2011  13:43
 Eyþór Helgi Birgisson er gengin aftur í raðir ÍBV eftir að hafa leikið með HK í sumar. Eyþór skoraði 11 mörk með HK í sumar og var einn af heitustu framherjum 1 deildarinnar. 
 
Eyþór Helgi kom fyrst á láni frá HK 2009 og spilaði síðan 21 leik með ÍBV 2010. Við bjóðum þennan skemmtilega framherja hjartanlega velkominn aftur til Eyja.