Fótbolti - Sumarlok ÍBV 2011

04.okt.2011  09:05

haldin með pompi og prakt í höllinni um liðna helgi

Sumarlok ÍBV 2011 uppskeruhátíð knattspyrnufólks í eyjum fóru fram laugardaginn 1. október síðastliðinn. Einsi Kaldi og hans fólk sá um glæsileg veisluföng, verðlaun voru afhent og menn heiðraðir, að lokum steig knattspyrnufólkið dans undir stjórn Valla Sport. Myndir frá kvöldinu má sjá með því að smella á meira hér fyrir neðan.