Fótbolti - Sísí Lára og félagar komnar í milliriðil EM 2012.

23.sep.2011  10:53
U-19 ára landslið Íslands í knattspyrnu tryggði sér í vikunni rétt til að leika í milliriðli Evrópumóts landsliða 2012.  IBV á einn fulltrúa í þessum hóp.  Sísí Lára sem er á yngra ári tók þátt í tveimur leikjum af þremur sem verður að teljast mjög góður árangur hjá henni.  Ísland byrjaði á því að leggja lið Slóveníu af velli 2-1.  Í næsta leik sigruðum þær lið Kazakstan 3-0 og að lokum lið Wales 2-0.
 
IBV óskar Sísí Láru innilega til hamingju með þennan árangur.