Handbolti - Veturinn búinn hjá Braga

13.apr.2011  21:03
Bragi Magnússon meiddist í leiknum gegn Víkingi. Í læknisskoðun í gær kom í ljós að meiðslin eru alvarlegri en leit út í byrjun. Hann verður frá keppni næstu þrjá mánuði. Hann missir því af úrslitakeppninni, sem byrjar á sunnudag með leik gegn Aftureldingu í Mosfellsbæ.