Bryggjudagur handboltadeildar ÍBV – íþróttafélags og Böddabita verður laugardaginn 17. júlí í Fiskmarkaðshúsinu í Friðarhöfn.
· Fiskmarkaður með fjölbreyttu úrvali fisktegunda, siginn fiskur, steinbítur, lúða, saltfiskur, ýsa, skötuselur, humar og margt fleira.
· Grímur kokkur og Godthaab (Böddabiti) verða með kynningu á ýmsum vörum.
· Dorgkeppn i fyrir börn. Skráning kl. 10:00 við Fiskmarkaðinn, veiði hefst kl. 10:15.
· Sölubás með ÍBV–varningi, bolir, grillsvuntur ofl.
· Ýmsir leikir fyrir börn.
· Tuðruferðir og jetski frá 11:00 – 13:00 ef veður leyfir. Verð 500 kr. í tuðru, 1000 kr. á jetski.
· Veitingar í umsjón stuðningskvenna handboltadeildarinnar.
Gerum okkur glaðan dag og styrkjum gott málefni í leiðinni