Fótbolti - ÍBV Íslandsmeistari í 2.flokki kvenna

08.sep.2008  20:18
Nú í kvöld varð ÍBV Íslandsmeistari í 2.flokki kvenna. Eyjastúlkur lögðu Valsstúlkur 3-1 í töluverðum rokleik á Helgafellsvelli. Staðan í hálfleik var 3-1 en ÍBV spilaði á móti sterkum vindi í fyrri hálfleik og leikurinn aldrei í hættu eftir það. Kristín Erna Sigurlásdóttir skoraði öll þrjú mörk ÍBV í leiknum. Óskum við Jóni Óla og stelpunum öllum til hamingju með þennan frábæra sigur.