Í kvöld mætir ÍBV
liði Njarðvíkur í 9.umferð 1. deildar karla. Eyjamenn sitja á toppnum í
deildinni en töpuðu sínum fyrsta leik um síðustu helgi, á gervigrasinu hjá
Haukum í Hafnafirði. Eyjaliðið er
staðráðið í að rífa sig upp og mæta ákveðnir til leiks með það að markmiði að
hefja næstu sigurgöngu liðsins. Frítt er
á völlinn í kvöld, þökk sé: Sparisjóð Vestmannaeyja, Ísfélaginu, Volare,
Vinnslustöðinni, Steina og Olla og Shellmótsnefnd ÍBV.
Knattspyrnuráð
vill þakka ofantöldum fyrirtækjum fyrir aðkomu sína að leik kvöldsins og
vonumst eftir að sjá sem flesta á Hásteinsvelli í blíðunni kl. 20.00 í kvöld.