Handbolti - Sigurður Bragason Íþróttamaður Vestmannaeyja.

21.jan.2008  16:51

Sigurður Bragason var s.l. föstudag kjörinn íþróttamaður Vestmannaeyja. Arnór Eyvar Ólafsson var á sama tíma útnefndur íþróttamaður æskunnar. Báðir þessir piltar eru vel að þessum heiðri komnir. Sigurður er óumdeildur leiðtogi handboltaliðs ÍBV og Arnór Eyvar stórefnilegur knattspyrnumaður. ÍBV Íþróttafélag óskar þessum glæsilegu fulltrúum íþróttafólks Eyjanna, innilega til hamingju með þann heiður, sem þeim hefir hlotnast með útnefninguna.