Fótbolti - Æfingaleikur í kvöld á Helgafellsvelli

04.maí.2007  11:32
Magnús Gylfason, fyrrverandi þjálfari meistaraflokks ÍBV, mætir á eyjuna í dag með liðið sitt, Víking. Verður leikurinn kl. 19.00 á Helgafellsvellinum. Mun þetta verða síðasti æfingaleikur ÍBV-liðsins fyrir komandi átök í sumar og er því nauðsynlegt að sem flestir láti sjá sig. Frítt verður á leikinn.