Fótbolti - Hópaleikurinn hefst um næstu helgi

10.sep.2005  08:35

Jæja jæja þá er komið að því að hinn sívinsæli hópaleikur ÍBV getrauna hefjist og mun hann hefjast með látum um næstu helgi. Í forsvari til að byrja með verða þeir félagar Hafsteinn Hjálmars og Örn og Óðinn Hilmissynir, þ.e.a.s. þeir munu dvelja í Týsheimilinu á laugardögum og hrista upp í stemmningunni. Þeir tvíburar hafa gefið forláta farandbikar sem keppt verður um tvisvar á ári og hafa þeir ákveðið að sigurvegarar síðasta vors þeir félagar í Pörupiltum (Már Jóns og Baldvin Kristjáns) geymi bikarinn til jóla, eða þar til haustleiknum lýkur, og teljist þar með fyrstu handhafar bikarsins en við skírum nánar frá þessu eftir helgi og hvernig menn geta skráð sig til leiks og hvað verður í boði í haust.

Svo er kannski rétt að menn líti á þetta til að koma sér í getraunagírinn!!!

http://www.u2exit.com/welcome.shtml