Fótbolti - Ferill Birkis Kristinssonar á enda ?

25.júl.2005  21:17

Birkir Kristinsson meiddist illa í leik ÍBV og FH s.l. sunnudag og hefur komið í ljós að herðablað er brotið hjá kappanum. Það er því ljóst að það mun taka allnokurn tíma fyrir Birki að jafna sig á meiðslunum og því líklegt að langur og farsæll ferill Birkis í boltanum sé á enda, en hann hafði gefið út að þetta yrði hans síðasta tímabil.

Viljum við senda Birki okkar bestu batakveðjur og vonumst til þess að hann nái sér sem allra fyrst. Það er þó trúlega fullmikil bjartsýni að búast við að sjá hann klæðast ÍBV-treyjunni fyrir lok þessa tímabils.