Fótbolti - Dregið í Evrópukeppninni á föstudag

22.jún.2005  09:33

Dregið verður í forkeppni evrópukeppni félagsliða (UEFA-cup) n.k. föstudag. Búið að að raða liðum í potta fyrir þennan drátt og mögulegir andstæðingar ÍBV eru eftirtalin lið:

Cork FC (Írland), FC TVMK Tallin (Eistland), FC Flora (Eistland), Pordadown FC (Norður-Írland), Linfield (Norður-Írland), Rhyl FC (Wales), Carmarthen Town AFC (Wales), CS Pétange (Lúxemborg), FC Etzella Ettelbruck (Lúxemborg), B36 Þórshöfn (Færeyjar), NSÍ Runavík (Færeyjar).

Takist ÍBV að komast í gegnum þessa umferð er sá skemmtilegi möguleiki í spilunum að ÍBV dragist gegn Halmstad BK, sem er jú einmitt lið Gunnars Heiðars Þorvaldssonar.