Fótbolti - Gunnar Heiðar með þrennu gegn Landskrona

24.maí.2005  15:29

Í gærkvöld var Gunnar Heiðar Þorvaldsson í banastuði með liði sínu, Halmstad, gegn Landskrona, er hann breytti stöðu leiksins úr 1-1 í 4-1 með þrennu. Það er greinilegt að kappinn er að finna sig hjá Halmstad og hefur hann verið heitur og hefur nú skorað 5 mörk í 8 leikjum.

Bestu kveðjur til Gunnars Heiðars í Halmstad og megi hann taka sænska gullskóinn með trompi.