Fótbolti - Englendingur kemur til reynslu

26.apr.2005  15:12
Í kvöld kemur til landsins peyji að nafni Andrew Sam, framherji sem hefur áhuga á að komast að hjá ÍBV og splila með okkur í sumar
Andrew er fæddur þann 1. nóvember 1982 í Leeds á Englandi og hefur síðustu ár leikið með Cal State Fullerton háskólanum í Kaliforníu. Andrew mun dvelja hjá okkur í viku og á þeim tíma munu menn sjá hvað í hann er spunnið og taka afstöðu til þess hvort við hann verður samið.